
Bónus
Bónus er leiðandi vörumerki á íslenskum dagvörumarkaði með hátt upp í 1000 starfsmenn á sínum snærum. Bónus hefur í yfir 30 ár boðið Íslendingum upp á bestu mögulegu verð á matvöru.
Markaðsfulltrúi hjá Bónus
Afleysing vegna fæðingarorlofs með möguleika á áframhaldandi starfi!
Við leitum að öflugum og skapandi markaðsfulltrúa til liðs við markaðsteymi Bónus. Starfið er fjölbreytt og krefst bæði skipulagshæfileika og góðrar tilfinningar fyrir framsetningu, hönnun og markaðssamskiptum. Viðkomandi mun koma að fjölbreyttum verkefnum á sviði markaðsmála, allt frá hönnun og efnisgerð til utanumhalds verkefna, birtinga og stafrænna miðla.
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni:
Umsjón með birtingum og birtingaplönum á fjölbreyttum miðlum
- Samskipti við fjölmiðla, birgja og samstarfsaðila
- Hönnun og uppsetning skilta, merkinga og annars markaðsefnis
- Umsjón með verkefnum tengdum Ódýrast vikunnar
- Umsjón með fréttabréfum og öðrum reglubundnum markaðsbirtingum
- Uppfærsla og rekstur vefs Bónus
- Umsjón með framleiðslu og pöntunum markaðsefnis
- Samstarf við auglýsingastofur, framleiðendur og aðra þjónustuaðila
- Þátttaka í markaðsherferðum og öðrum verkefnum markaðsteymisins
Menntunar- og hæfniskröfur
Við leitum að einstaklingi sem:
- Hefur reynslu af markaðs-, kynningar- eða samskiptastörfum
- Hefur góða tilfinningu fyrir hönnun, framsetningu og vörumerkjum
- Er skipulagður, sjálfstæður og lausnamiðaður
- Hefur góða samskiptahæfni og á auðvelt með samstarf
- Getur haldið utan um mörg verkefni samtímis og komið þeim í framkvæmd
- Hefur gott vald á íslensku í rituðu máli og góða enskukunnáttu
Kostur er ef þú hefur reynslu af:
- Adobe Creative Cloud (Illustrator, InDesign og Photoshop)
- Figma
- Klaviyo eða sambærilegum markaðs- og fréttabréfakerfum
- Meta Business Manager eða Google Ads
- Efnisstjórnunarkerfum og vefumsjón
- Samfélagsmiðlum, myndvinnslu og efnisgerð
- Menntun í markaðsfræði, samskiptum eða sambærilegu námi
Auglýsing birt10. júní 2026
Umsóknarfrestur26. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Norðlingabraut 2, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (9)

Publishing Producer
Fenris Creations

Þjónustufulltrúi 50% starf
Ráðlagður Dagskammtur

Talent Acquisition Specialist
Fenris Creations

AI-vöruþróun
Sante ehf.

Markaðsfulltrúi - afleysing
BAUHAUS slhf.

Markaðsfulltrúi
Securitas

Sérfræðingur í markaðsmálum og samskiptum
Reitir

Markaðssérfræðingur
IKEA

Head of Growth
Cycle.io