Lyfja
Lyfja
Lyfja

Lyfja Smáratorgi - akstur og þjónusta

Við leitum að jákvæðum og áreiðanlegum einstaklingi með ríka þjónustulund í útkeyrslu á lyfjum og hjúkrunarvörum á höfuðborgarsvæðinu. Viðkomandi gegnir lykilhlutverki í að veita faglega þjónustu og tryggja góða þjónustuupplifun til viðskiptavina Lyfju. Gilt bílpróf og hreint sakavottorð er skilyrði.

Hlutverk og ábyrgð:

  • Tryggja réttmæta afhendingu á lyfjasendingum til viðtakenda
  • Tryggja réttmæta afhendingu á hjúkrunarvörum til viðtakenda
  • Sjá til þess að símar og öryggishnappur séu hlaðnir og á sínum stað í lok vaktar

Hvaða hæfni þarft þú að hafa?

  • Ríka þjónustulund og gott viðmót
  • Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áreiðanleika og getu til að starfa í hröðu umhverfi
  • Gilt bílpróf og hreint sakavottorð
  • Góða íslensku- og enskukunnáttu

Starfið:

Vinnutími er frá 10:00-16:00 alla virka daga.

Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri og geta hafið störf sem fyrst.

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka lífsgæði og efla heilsu. Við rekum 42 verslanir hringinn í kringum landið auk Lyfju Heyrnar og lyfjaskömmtunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu, vinnur að vellíðan og tryggir lyfjaöryggi. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu og stöðuga nýsköpun.

Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Starfsfólk Lyfju nýtur góðra kjara á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1, sem öll eru hluti af Festi hf.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Arnardóttir, lyfsali Lyfju Smáratorgi í síma 564 5600 og á [email protected]

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt19. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Smáratorg 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar