Hallgrímskirkja
Hallgrímskirkja
Hallgrímskirkja

Hallgrímssókn auglýsir laust til umsóknar starf kirkjuvarðar við Hallgrímskirkju.

Hallgrímskirkja er ekki bara stærsta kirkja landsins og einn vinsælasti ferðamannastaður landsins heldur einnig sóknarkirkja með öflugt og mikið helgihald- og tónleikahald.

Starfsvið kirkjuvarða eru margvísleg og felast m.a. í umsjón með kirkju og búnaði hennar, aðstoð og undirbúningi helgihalds og tónleika, bókun viðburða í kirkju og safnaðarheimili, þrif á kirkju og salarkynnum, afgreiðsla í verslun o.fl.

Mikilvægir kostir eru frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfileikar og snyrtimennska, góð hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu, lipurð, stundvísi og þjónustulund.

Áhugi á kirkju og kirkjulegu starfi sem og reynsla af kirkjulegu starfi er æskileg.

Góð íslensku- og enskukunnátta er mikilvæg svo og góð almenn tölvukunnátta.

Um er að ræða fullt starf en einnig kemur til greina minna starfshlutfall.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá um menntun og fyrri störf og samþykki fyrir öflun upplýsinga úr sakaskrá.

Umsóknum skal skilað til kirkjuhaldara á netfangið [email protected]

Umsóknarfrestur er til 4. September.

Auglýsing birt19. ágúst 2026
Umsóknarfrestur4. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar