

Starfsmaður óskast í Víkingaheima – The Viking World
Hefur þú áhuga á sögu, menningu og fólki?
Langar þig að vinna á einstökum vinnustað þar sem gestir koma alls staðar að úr heiminum?
Víkingaheimar – The Viking World leita að jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingi í fullt framtíðarstarf.
Við leitum að einstaklingi sem hefur reynslu af safnastarfi eða mikinn áhuga á söfnum, sögu og menningu og hefur gaman af samskiptum við ferðamenn og fólk frá ólíkum löndum.
Um er að ræða fullt starf í dagvinnu og helgarvinnu
Staðsetning: Víkingabraut 1, 260 Reykjanesbær
Starfshlutfall: 100%
Upphaf starfs: Sem fyrst
- Móttaka og þjónusta við gesti
- Miðasala og upplýsingagjöf
- Aðstoð og leiðbeiningar um safnið og sýningar þess
- Sala og þjónusta í safnbúð
- Almenn verkefni tengd daglegum rekstri safnsins
- hefur reynslu af safnastarfi eða mikinn áhuga á sögu og menningu
- er jákvæður, opinn og þjónustulundaður
- hefur gaman af samskiptum við fólk
- er ábyrgur, sjálfstæður og áreiðanlegur
- talar góða ensku; önnur tungumál eru kostur
Við bjóðum upp á fjölbreytt og skemmtilegt starf og tækifæri til að taka þátt í áframhaldandi þróun og uppbyggingu Víkingaheima. Ef þú hefur gaman af fólki, sögu og góðri gestaupplifun gæti þetta verið starfið fyrir þig.
Íslenska
Enska










