
Dyrabær
Dýrabær rekur sex verslanir, í Smáralind, Kringlu, Spöng, Keflavík og Akranesi auk vefverslunar. Við elskum dýr og allir sem vinna hjá okkur eiga dýr.
Dýrabær selur vörur sem eru unnar úr náttúrulegum hráefnum án aukaefna, svo sem rotvarnar- og litarefna. Við leggjum mikla áherslu á selja vörur sem viðhalda heilbrigði og vellíðan dýranna og höfum valið þær vörur af mikilli kostgæfni.

Dýrabær á Akureyri - Verslunarstjóri og helgarstörf í boði.
Átt þú hund eða kött og ert tengd/ur inn í hundasamfélagið á Akureyri?
Þá gæti þetta starf verið fyrir þig.
Við viljum aðeins það besta fyrir dýrin og leitum að starfsmanni sem er dýravinur, hefur reynslu af afgreiðslu- og þjónustustörfum, ríka þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum, er skipulagður, sjálfstæður og metnaðarfullur í vinnubrögðum.
Góð íslensku kunnátta er skilyrði og mikill kostur að eiga dýr.
Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi til að sjá um verslunina okkar á Akureyri.
Um tvö störf er að ræða:
- Verslunarstjóri - vinnutími 11:00-18:00, allir virkir dagar.
- Helgarstarfsmaður - vinnutími 12:00-17:00, annanhvorn laugardag (með möguleika á fleirri vöktum)
Viðkomandi þarf að geta byrjað sem fyrst.
Starfsstöð starfsmanns er í Dýrabæ, Hólabraut 16
Vinsamlegast sendið kynningarbréf og ferilskrá með umsókninni.
Athugið að Dýrabær er reyklaus vinnustaður.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Afgreiðsla og ráðgjöf til viðskiptavina
- Uppröðun í verslun, áfyllingar og verðmerkingar
- Halda verslunarrými snyrtilegu / þrif í verslun
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi á dýravörum
- Rík þjónustulund
- Áreiðanleg vinnubrögð
- Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
- Stundvísi, reglusemi og snyrtimennska
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Auglýsing birt19. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Akureyri
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaMetnaðurReyklausSjálfstæð vinnubrögðStundvísiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Icewear Akureyri og Goðafossi - Sölufulltrúar
ICEWEAR

Sölufulltrúi í verslun
Hegas ehf.

Icewear Þingvöllum óskar eftir
ICEWEAR

Verslunarstjóri - Kjörbúðin Skagaströnd
Kjörbúðin

Verslunarstjóri - Kjörbúðin Ólafsfirði
Kjörbúðin

Sölufulltrúi Reykjanesbæ - Fullt starf
Heimilistæki / Tölvulistinn

Úthringiver
Afkoma vátryggingarmiðlun ehf.

Floor Manager - COS
COS

Weekday - Söluráðgjafi hlutastarf (tímabundið)
Weekday

Sölu- og þjónusturáðgjafi í verslun Sýnar - hlutastarf
Sýn

Sölu- og þjónusturáðgjafi í verslun Sýnar
Sýn

Sölufulltrúi í valvöru - Fullt starf
BAUHAUS slhf.