
Starfsmaður á bókasafn
Menntaskólinn á Akureyri óskar eftir að ráða starfsmann á bókasafn í 100% starfshlutfall. Um er að ræða tímabundið starf fram að áramótum með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar veitir skólameistari í síma 862-8754 eða [email protected]
· Almenn afgreiðsla, útlán og skil, röðun í hillur, aðstoð við upplýsinga- og heimildaleitir.
· Sala á námsefni
· Símsvörun
· Viðhald á safnakosti. Þrif á hillum, grisjun og rukkun
· Umsjón með lessal / bókasafni
· Ábyrgð og eftirlit með búnaði safnsins og tækjum
· Aðstoða við notkun á upplýsingatækni í samvinnu við UT - ráðgjafa.
· Önnur verkefni í samráði við skólameistara
· Kostur að þekkja til hugbúnaðar og tækja sem er notaður í skólaumhverfi
· Búa yfir hæfni í mannlegum samskiptum og vera með góða þjónustulund
· Hafa góða skipulagshæfileika og hugsa í lausnum
· Að geta unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði
· Góð tölvukunnátta, íslensku- og enskukunnátta
Íslenska
Enska










