Norðlingaskóli
Norðlingaskóli
Norðlingaskóli

Listgreinakennari við Norðlingaskóla

Norðlingaskóli leitar að skapandi og metnaðarfullum listgreinakennara með áherslu á leiklist til að ganga til liðs við öflugt teymi kennara sem vinnur saman að fjölbreyttu og skapandi skólastarfi. Um er að ræða 100% tímabundið starf skólaárið 2026-2027 frá 1. ágúst 2026.

Í list- og verkgreinateymi skólans starfar öflugur hópur kennara sem vinnur náið saman að fjölbreyttum og skapandi verkefnum með nemendum. Samstarf verk- og listgreinakennara við aðra kennara í skólanum er m.a. í gegnum smiðjuvinnu þar sem unnið er að þemaverkefnum og leiklistarsýningum. Góð aðstaða til list- og verkgreinakennslu styður við samstarf, samþættingu námsgreina og skapandi skólastarf.

Í Norðlingaskóla er áhersla á teymiskennslu, samkennslu árganga, einstaklingsmiðað nám, smiðjuvinnu, náið samráð við foreldra, nýbreytni og skólaþróun. Allt skólastarf byggir á teymisvinnu starfsfólks.

Norðlingaskóli er heildstæður grunnskóli með rúmlega 500 nemendur í 1. – 10. bekk. Skólinn er staðsettur í einstöku umhverfi í Norðlingaholti. Við skólann er samþætt grunnskóla- og frístundastarf.

Stefna og starf skólans grundvallast á því lífsviðhorfi að hverjum einstaklingi skuli búin námsskilyrði svo hann megi þroskast og dafna á eigin forsendum og útskrifast úr grunnskóla sem sjálfstæður, sterkur og lífsglaður einstaklingur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu nemenda í samstarfi við skólastjórnendur og aðra kennara.
  • Tekur þátt í uppsetningu á leiksýningum í samstarfi við aðra kennara.
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Tekur þátt í þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
  • Menntun og/eða reynsla á sviði leiklistar.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
  • Áhugi á skapandi kennsluháttum og þróun skólastarfs.
  • Áhugi og vilji til að starfa í teymisvinnu.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Auglýsing birt29. júní 2026
Umsóknarfrestur9. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Árvað 3, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar