Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs.
Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs.

Laus er til umsóknar staða verkefnastjóra í mannvirkjamálum

Umhverfis- og tæknisvið uppsveita bs. leitar eftir verkefnastjóra í stoðteymi með áherslu á mannvirkjamál. Undir embættið heyra skipulags-, seyru- og byggingarmál sex sveitarfélaga. Við leitum af einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á byggingarmálum og með góða skipulagshæfni ásamt lipurð í mannlegum samskiptum. Verkefnastjóri í stoðteymi mun starfa í nánu samstarfi við byggingarfulltrúa, starfsfólk og hagaðila innan sem utan embættisins.

Helstu verkefni og ábyrgð

·         Öryggis- og lokaúttektir byggingarleyfa og gerð vottorða.

·         Stöðuskoðanir og eftirlit á framkvæmdastöðum.

·         Samskipti og bréfaskrif.

·         Yfirferð gagna og skráningar.

·         Önnur tilfallandi verkefni.

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Iðnmeistari með löggildingu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og eða arkitekt, byggingartæknifræði, byggingarfræði eða menntun í sambærilegum tæknigreinum á háskólastigi.

·         Reynsla af byggingariðnaði er kostur.

·         Þekking á byggingarreglugerð.

·         Metnaður og frumkvæði til að ná árangri í starfi.

·         Metnaður og vilji til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni.

·         Hæfni í mannlegum samskiptum.

·         Góð almenn tölvukunnátta.

Auglýsing birt9. desember 2025
Umsóknarfrestur30. desember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Laugarvatn 167638, 801 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Meistarapróf í iðngreinPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Smíðar
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar