Advania
Advania
Advania

Launaráðgjafi mannauðslausna

Mannauðslausnir Advania leita að jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingi með reynslu af launamálum til að gegna starfi launaráðgjafa.

Mannauðslausnir Advania þróa og þjónusta lausnir sem hjálpa vinnuveitendum að auka árangur og ánægju starfsfólks og stjórnenda. Hjá okkur starfar öflugur hópur sérfræðinga með áratuga reynslu af þróun og ráðgjöf á sviði launa- og mannauðsmála m.a. H3 launa- og mannauðskerfið og tímaskráningarkerfin Bakvörð og Vinnustund.

Við leggjum metnað í að veita framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf til allra þeirra sem nota lausnirnar okkar. Launaráðgjafi getur ýmist verið staðsettur á starfstöðvum okkar í Reykjavík eða Akureyri.

Teymið

Í ráðgjafateymi mannauðslausna eru sérfræðingar sem hafa starfað sem launafulltrúar og mannauðsstjórar og hafa mikla reynslu af verkefnum tengdum launavinnslu, verkbókhaldi, ráðningum, jafnlaunavottunum og öðrum mannauðstengdum málum

Starfssvið

Starfið felur í sér ráðgjöf og þjónustu við launafulltrúa og mannauðsfólk, innleiðingu á launa- og mannauðskerfum og umbótaverkefnum hjá viðskiptavinum. Auk þess felur starfið í sér tilfallandi verkefni tengd launavinnslu fyrir viðskiptavini Advania.

Almennar hæfniskröfur

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Nákvæm og öguð vinnubrögð
  • Góð almenn tölvukunnátta

Þekking og reynsla

  • Reynsla af launavinnslu er skilyrði
  • Reynsla af H3 er kostur
  • Reynsla af Bakverði er kostur
  • Góð greiningarhæfni
  • Góð færni í Excel

Ef þú hefur áhuga á starfinu en uppfyllir ekki allar kröfur, hvetjum við þig samt til að sækja um – þú gætir verið rétti einstaklingurinn fyrir þetta eða annað starf hjá okkur.

Auglýsing birt10. september 2025
Umsóknarfrestur24. september 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Austursíða 6, 603 Akureyri
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar