

Langar þig að vinna á einu flottasta bifreiðaverkstæði landsins ?
Hekla leitar að bifvélavirkjum til liðs við okkur á glænýju verkstæði okkar að Þorraholti í Garðabæ.
Við bjóðum upp á:
- Framúrskarandi vinnuaðstöðu með nýjum tækjabúnaði
- Sterkan og samheldinn hóp samstarfsfólks
- Frábært mötuneyti
- Fjölbreytt og spennandi verkefni
- Þjálfun og þróun í nýjustu tækni frá Volkswagen Group (Volkswagen, Skoda, Audi)
Ef þú hefur metnað fyrir fagmennsku og vilt starfa í nútímalegu umhverfi með sterkum stuðningi við starfsþróun, þá viljum við heyra frá þér.
Öll kyn eru hvött til að sækja um.
Ábyrgðarviðgerðir og almennar viðgerðir á bifreiðum í samræmi við verklag og gæðastaðla framleiðenda.
Greining og bilanaleit með nútímalegum greiningarbúnaði.
Viðhald, þjónusta og eftirlit með ökutækjum samkvæmt þjónustuferlum.
Tryggja vönduð vinnubrögð og hámarks gæði í allri framkvæmd.
Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast starfseminni.
Sveinspróf í bifvélavirkjun
Sjálfstæði í vinnubrögðum, metnaður og vandvirkni
Frábær samskiptahæfni
Stundvísi og almenn reglusemi.
Góð ensku- og tölvukunnátta
Hjá Heklu starfar samhentur og metnaðarfullur hópur fólks þar sem góð samvinna og jákvæður starfsandi eru í fyrirrúmi.
Við bjóðum starfsfólki meðal annars upp á:
- Gott mötuneyti með fjölbreyttu úrvali.
- Íþróttastyrk til að styðja við heilsusamlegan lífsstíl.
- Árlegar heilsufarsmælingar og bólusetningar.
- Afsláttarkjör af vörum og þjónustu Heklu og systurfélaga.
- Fræðslu og þjálfun í nýjustu tækni frá Volkswagen Group.
- Framúrskarandi vinnuaðstöðu á nýju og glæsilegu verkstæði.
Enska
Íslenska










