
Eykt ehf
Byggingarfélagið Eykt var stofnað árið 1986 og er fyrirtækið um þessar mundir meðal stærstu byggingarfélaga landsins. Á þeim næstum 40 árum sem liðin eru hefur Eykt öðlast víðtæka reynslu af öllum gerðum verkefna, allt frá flóknum framkvæmdum í þrengslum miðborgarinnar að erfiðisvinnu við óblíðar aðstæður á fjöllum og í straumhörðum fjörðum. Eykt sérhæfir sig í steinsteypu og hefur hlotið Steinsteypuverðlaunin fyrir brýrnar yfir Hringbraut 2010 og Nýja bíó/Grillmarkaðinn
Eykt hefur ávallt verið byggt upp og rekið með langtímasjónarmið í huga. Leiðarljós félagsins er að vera þekkingarfyrirtæki í byggingariðnaði.
Ef þú hefur áhuga á að komast í Eyktarhópinn skaltu senda okkur starfsumsókn.

Lager- og birgðaumsjón
Við leitum að öflugum, sjálfstæðum og skipulögðum einstaklingi til að hafa umsjón með inni- og útilager fyrirtækisins.
Starfið er fjölbreytt og felur í sér tækifæri til að hafa áhrif á skipulag, verklag og þróun lagerstarfseminnar, meðal annars með innleiðingu 5S-skipulagskerfisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón og skipulag inni- og útilagers.
- Móttaka, skráning og afhending efnis, verkfæra og búnaðar.
- Birgðaeftirlit og eftirfylgni með ástandi búnaðar.
- Þátttaka í innleiðingu 5S og umbótum á verklagi.
- Samstarf við verkstjóra og aðra starfsmenn.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af lagerstörfum eða sambærilegum verkefnum.
- Frumkvæði, sjálfstæði og rík framkvæmdahæfni.
- Hæfni til að innleiða nýtt skipulag og fylgja breytingum eftir.
- Góð samskiptahæfni og almenn tölvukunnátta.
- Þekking á 5S, byggingarefnum, verkfærum eða birgðakerfum er kostur.
- Íslenskukunnátta er skilyrði.
Auglýsing birt11. nóvember 2026
Umsóknarfrestur29. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Stórhöfði 34-40 34R, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Lagerstarfsmaður óskast
Hreinlætislausnir Áfangar ehf.

Vaktstjóri á Frílager / Bonded Store Duty Manager
NEWREST ICELAND ehf.

Umsjón netverslunar og vörulagers
Wodbúð

Vertu með okkur í að byggja lager framtíðarinnar
Hekla

Starfsmaður á lager
RJR ehf

Hópstjóri gæðamála í vöruhúsi Innnes
Innnes ehf.

Lagerstarfsmaður hjá MAN á Íslandi
Kraftur hf.

Heimsendingar á kvöldin - tímabundið starf
Dropp

Bílstjóri - Lagerstarfsmaður
Fiskikóngurinn ehf.

Tímabundin störf í nóvember og desember.
Dropp

Lagerstarfsmaður
KS

Almennt starf í vöruhúsi Bakkans - Dagvakt, fullt starf
Bakkinn vöruhótel