
Bakkinn vöruhótel
Bakkinn vöruhótel sérhæfir sig í vöruhýsingu, pökkun, vörumerkingu, afgreiðslu og dreifingu á vörum fyrir viðskiptavini sem kjósa að úthýsa sinni vöruhúsastarfsemi að einhverju eða öllu leyti.

Almennt starf í vöruhúsi Bakkans - Dagvakt, fullt starf
Vilt þú ganga til liðs við öflugan hóp hjá Bakkanum?
Bakkinn Vöruhótel leitar að duglegu og áreiðanlegu starfsfólki í fullt starf á dagvakt. Við leitum að einstaklingum sem kunna vel við sig í fjölbreyttu og líkamlegu starfi, sýna frumkvæði og eiga auðvelt með að vinna með öðrum.
Bakkinn rekur tvö vel útbúin vöruhús í Klettagörðum 13 og Skarfagörðum 2. Hjá okkur starfar fjölbreyttur hópur sem vinnur saman að því að tryggja góða þjónustu og að vörur skili sér á réttan stað á réttum tíma.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tínsla og afgreiðsla pantana
- Vörumóttaka og frágangur á vörum
- Almenn tiltekt og umhirða á vinnusvæði
- Önnur tilfallandi verkefni í vöruhúsinu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Ábyrgð, áreiðanleiki og stundvísi
- Góð færni í samskiptum og samvinnu
- Frumkvæði og vilji til að læra ný verkefni
- Líkamlegt þrek til að sinna vöruhúsastörfum
- 18 ára aldur að lágmarki
- Gild ökuréttindi
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
- Lyftararéttindi eru kostur
Fríðindi í starfi
- Framtíðarstarf á dagvakt hjá öflugu fyrirtæki
- Fjölbreytt verkefni og góðan hóp samstarfsfólks
- Þjálfun og stuðning við að komast inn í starfið
- Aðgang að Velferðarþjónustu Bakkans
- Afsláttarkjör hjá ELKO, Lyfju, Krónunni og N1
- Styrk til heilsueflingar
- Niðurgreiddan morgun- og hádegismat
Auglýsing birt26. október 2026
Umsóknarfrestur13. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaValkvætt
EnskaValkvætt
Staðsetning
Skarfagarðar 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

STARFSMAÐUR Í VÖRUHÚSI
Bako Verslunartækni

Framtíðarstarf í vöruhúsi TDK Foil Iceland ehf, Akureyri
TDK Foil Iceland ehf

Renniverkstæði - Lagerstarf
Embla Medical | Össur

Lagerstarf
Ísfell

Sölufulltrúi, lager- og dreifing
Mekkano heildsala

Starfsfólk í viðbótamerkingar
Distica

Starfsfólk í vörumóttöku
Distica

Lager- og þjónustustarf
Rafha - Kvik

A4 - Móttaka í vöruhúsi
A4

Bílstjóri og lagerstarfsmaður
Vörumerking ehf

Lagerstarfsmaður
Hirzlan

Starfsmaður á lager
Rafkaup