
Bakkinn vöruhótel
Bakkinn vöruhótel sérhæfir sig í vöruhýsingu, pökkun, vörumerkingu, afgreiðslu og dreifingu á vörum fyrir viðskiptavini sem kjósa að úthýsa sinni vöruhúsastarfsemi að einhverju eða öllu leyti.

Meiraprófsbílstjóri hjá Bakkanum
BAKKINN Vöruhótel leitar að þjónustulunduðum, áreiðanlegum og drífandi einstaklingi í framtíðarstarf meiraprófsbílstjóra.
Við leitum að einstaklingi sem vinnur sjálfstætt, leggur áherslu á öryggi og góða þjónustu og er tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni í lifandi starfsumhverfi.
BAKKINN Vöruhótel í Klettagörðum er aðal vöruhús N1. Vinnustaðurinn er fjölbreyttur og alþjóðlegur og þar starfar öflugur hópur fólks að sameiginlegum markmiðum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Akstur og afhending vara til viðskiptavina
- Lestun og losun vörubifreiðar
- Afgreiðsla og dæling á efnavöru
- Umsjón með vörum og frágangi í tengslum við útkeyrslu
- Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
- Önnur tilfallandi verkefni tengd starfseminni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meiraprófsréttindi í flokki C eru skilyrði
- Reynsla af útkeyrslu og vöruflutningum er kostur
- ADR-réttindi eru kostur
- Starfsmaður sem ekki hefur ADR-réttindi fær tækifæri til að sækja ADR-námskeið
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Sterk öryggisvitund
- Grunnþekking á tölvum
- Jákvætt viðhorf og geta til að vinna undir álagi
- Góð samskiptafærni og rík þjónustulund
- Stundvísi, áreiðanleiki og heiðarleiki
Fríðindi í starfi
- Aðgangur að Velferðarþjónustu Bakkans
- Afsláttarkjör hjá Elko, Lyfju, Krónunni og N1
- Styrkur til heilsueflingar
- Niðurgreiddur hádegismatu
Auglýsing birt26. október 2026
Umsóknarfrestur13. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaValkvætt
EnskaValkvætt
Staðsetning
Skarfagarðar 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÚtkeyrslaVöruflutningar
Starfsgreinar
Starfsmerkingar





