Icelandia
Icelandia
Icelandia

Kynningarfulltrúi

Við leitum að hressum og söludrifnum einstaklingi í hlutastarf við að keyra út og stilla upp kynningarbæklingum hjá samstarfsaðilum, svo sem hótelum og upplýsingamiðstöðvum. Starfið hentar vel fyrir einstakling sem er jákvæður í samskiptum, hefur gaman af sölutengdum verkefnum og auga fyrir snyrtilegri uppstillingu og framsetningu.

Ferðaskrifstofa Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Fyrirtækið sinnir ferðamönnum með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.

Job description in English is available by clicking "Sækja um".

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dreifing og uppstilling kynningarefnis á Höfuðborgarsvæðinu.
  • Viðhalda góðu samstarfi við starfsfólk gististaða og upplýsingamiðstöðva.
  • Tryggja að kynningarefni sé áberandi og vel fram sett.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Vera sölumaður í eðli og þora að taka frumkvæði.
  • Reynsla af sölustörfum er kostur.
  • Gild ökuréttindi og bíll til umráða eru skilyrði.
  • Sjálfstæð vinnubrögð, jákvæðni og áreiðanleiki.
  • Hafa gott auga fyrir framsetningu og skipulagi.
  • Góð íslensku- eða enskukunnátta er skilyrði.
Auglýsing birt31. mars 2026
Umsóknarfrestur15. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Mjög góð
Staðsetning
Klettagarðar 12, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Vöruframsetning
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar