Krambúðin
Krambúðin
Krambúðin

Krambúðin Tjarnabraut verslunarstarf

Krambúðin á Tjarnabraut leitar að jákvæðu og áreiðanlegu starfsfólki í hlutastarf. Vinnutími er aðallega á kvöldin á virkum dögum, með möguleika á aukinni vinnu eftir þörfum.

Umsækjendur þurfa að vera orðnir 18 ára.

Krambúðin er einstaklega skemmtilegur og líflegur vinnustaður og hentar starfið einstaklingum af öllum kynjum.

Frekari upplýsingar veitir Guðni Rúnar Gefnarson verslunarstjóri [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð

- Almenn verslunarstörf

- Vöruframsetning og áfylling

- Afgreiða og þjónusta viðskiptavini

- Þrif og frágangur

Menntunar- og hæfniskröfur

- Jákvætt viðmót og þjónustulund

- Skipulögð vinnubrögð

- Stundvísi og áræðni

- Sjálfstæði

- Reynsla af verslunarstörfum er kostur en ekki skilyrði

Fríðindi í starfi

- Heilsustyrkur til starfsmanna í boði

- Afsláttarkjör í verslunum Samkaupa

- Velferðaþjónusta til starfsmanna í boði

Auglýsing birt29. apríl 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Tjarnabraut 24, 260 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar