
Kennsluráðgjafi
Suðurnesjabær óskar eftir að ráða kennsluráðgjafa í 100% tímabundið starf til eins árs á mennta- og tómstundasviði. Starfsfólk sviðsins starfar í þverfaglegu og sveigjanlegu starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á samvinnu, snemmtæka íhlutun og farsæld í þágu barna og fjölskyldna þeirra. Kennsluráðgjafi sinnir ráðgjöf við leik- og grunnskóla.
Í sveitarfélaginu eru tveir leikskólar, tveir grunnskólar og tónlistarskólar. Mennta- og tómstundasvið sinnir einnig félags- og fræðslumálum fyrir sveitarfélagið Voga á grundvelli samnings,. Þar er einn leikskóli og einn grunnskóli.
Starf kennsluráðgjafa miðar að því að styrkja faglegt starf skólanna þannig að öll börn fái sem best notið sín í skólasamfélaginu. Kennsluráðgjafi vinnur í nánu samstarfi við stjórnendur, starfsfólk skóla og foreldra við að finna leiðir til að mæta þörfum nemenda en mikilvægt er að koma til móts við nemendur með fjölbreyttar þarfir sem og nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Kennsluráðgjafi tekur þátt í þverfaglegri teymisvinnu, sinnir ráðgjöf og fræðslu í skólum sem eru í stöðugri þróun.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Fræðsla og ráðgjöf til foreldra og starfsfólks skóla vegna einstaklinga og/eða hópa með fjölbreyttar þarfir
- Stuðningur og handleiðsla vegna fjölbreyttra og árangurríkra kennsluhátta með áherslur á snemmtækan stuðning í skóla fjölbreytileikans
- Stuðningur við nýbreytni- og þróunarstarf skóla, m.a. með ráðgjöf við stjórnendur og starfsfólk skóla
- Athuganir og skimanir í leik- og grunnskólum
- Vinna að samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna
- Vinna í þverfaglegu samstarfi skóla- og velferðarþjónustu
- Önnur verkefni samkv. starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf kennara og farsæl kennslureynsla
- Framhaldsnám sem nýtist í starfi er æskilegt
- Þekking á fjölbreyttum náms- og kennsluaðferðum
- Þekking og reynsla af því að vinna eftir lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna er kostur
- Þekking og reynsla af vinnu með nemendum með fjölbreyttan tungumála og menningarbakgrunn er kostur
- Skipulagshæfni, sjálfstæði og frumkvæði
- Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 25. maí 2026
Nánari upplýsingar um starfið veitir Heiða Ingólfsdóttir, sviðsstjóri mennta- og tómstundasviðs, [email protected]
Umsókn skal að fylgja greinargóð starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir hæfni sinni í starfið.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Íslenska










