
Garðabær
Garðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir.
Starfsemi bæjarins býður upp á mörg skapandi, fjölbreytt og skemmtileg störf í lifandi umhverfi.

Hofsstaðaskóli - umsjónarkennarar
Hofsstaðaskóli auglýsir eftir umsjónarkennurum frá hausti 2026. Í skólanum verða um 460 nemendur í 1. – 7. bekk og þar starfa um 95 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.
Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda Menntastefnu Garðabæjar. Læsi og leiðsagnarnám skipa stóran sess og þjónusta við nemendur með sérþarfir er öflug.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sinnir kennslu og hefur umsjón með nemendahópi
- Skipuleggur nám og kennslu nemenda
- Fylgist með námi og þroska allra nemenda sinna og leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms, vinnusemi og þroska
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk
- Tekur þátt í teymisvinnu með umsjónarkennurum í árgangi ásamt öðrum fagaðilum sem koma að nemendum
- Vinnur að þróun skólastarfs í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
- Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
- Reynsla af kennslu í grunnskóla
- Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum
- Lipurð í samskiptum ásamt metnaði í starfi
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, stundvísi og samviskusemi
- Ánægja af starfi með börnum og ungmennum
- Reynsla af Leiðsagnarnámi er æskileg
- Þekking á uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar er æskileg
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
Fríðindi í starfi
- Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
Auglýsing birt15. maí 2026
Umsóknarfrestur1. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Skólabraut 5, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
KennariKennslaMannleg samskiptiMetnaður
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (10)

Hofsstaðaskóli - þroskaþjálfi
Garðabær

Urriðaholtsskóli - stuðningsfulltrúar
Garðabær

Sjálandsskóli - umsjónarkennari á miðstig
Garðabær

Sjálandsskóli - umsjónarkennari á yngsta stig
Garðabær

Álftanesskóli - grunnskólakennari í sérkennslu
Garðabær

Sjálandsskóli - náms- og starfsráðgjafi
Garðabær

Mánahvoll - deildarstjóri
Garðabær

Mánahvoll - leikskólakennari
Garðabær

Kirkjuból - leikskólakennari
Garðabær

5 ára deild Sjálandsskóla - sérkennslustjóri
Garðabær
Sambærileg störf (12)

Kennari í dönsku og fleiri greinum frá 1. ágúst 2026 40-100% staða
Fellaskóli

Kennsluráðgjafi
Suðurnesjabær

Kennarar óskast til starfa við nýjan samrekinn leik- og grunnskóla
Grindavíkurbær

Kennari í tónmennt og / eða leiklist 1. ágúst 2026
Fellaskóli

Tengiliður farsældar barna - Áslandsskóli
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri stoðþjónustu - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær

Umjónarkennari á unglingastigi - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Þroskaþjálfi - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónakennarar á miðstigi
Kerhólsskóli

Deildarstjóri stoðþjónustu - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri
Heilsuleikskólinn Kór

Fagstjóri í hreyfingu
Heilsuleikskólinn Kór