
Umsjónakennarar á miðstigi
Kerhólsskóli auglýsir stöðu tveggja ummsjónakennara sem vinna saman í teymi með miðstig skólaárið 2026-2027.
Í skólanum eru tæplega 100 nemendur frá eins árs og upp í 10. bekk.
Í Kerhólsskóla er lögð áhersla á einstaklingsmiðað nám, teymiskennslu og útinám. Unnið er samkvæmt hugmyndafræði „Uppeldi til ábyrgðar“. Leitað er eftir sjálfstæðu og drífandi fólki með góða þekkingu og áhuga á skólastarfi.
Umsjónakennari á miðstigi.
• Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi.
• Frumkvæði og hæfni til að skipuleggja nám í fjölbreyttum nemendahópi þar sem allir fá að njóta sín á eigin forsendum.
• Mjög góð hæfni í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi.
• Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum.
• Ábyrgð í starfi og stundvísi.
• Góð íslensku kunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum evrópska tungu.
Íslenska










