Kerhólsskóli
Kerhólsskóli

Sérkennari/Þroskaþjálfi í 100% starf

Kerhólsskóli, grunnskóladeild óskar eftir jákvæðum, faglegum og metnaðarfullum sérkennara og/eða þroskaþjálfa í 100% starf skólaárið 2026-2027. Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á einstaklingsmiðuðum stuðningi og þverfaglegu samstarfi um vellíðan og árangur nemenda í starfi.
Kerhólsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli með rúmlega 60 nemendur í grunnskóladeild. Í Kerhólsskóla er starfað í anda skóla fyrir alla og þannig lögð rík áhersla á að búa öllum nemendum aðstæður til náms við hæfi hvers og eins, nokkuð sem krefst sveigjanleika og skapandi hugsunar hjá öllu starfsfólki. Einkunnarorð skólans eru gleði, jákvæðni og virðing. Í skólanum er starfað eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Skólinn er grænfána- og heilsueflandi skóli auk þess sem áhersla er lögð á útikennslu og skapandi starf. Ef ekki fæst sérkennari eða þroskaþjálfi kemur til greina að ráða starfsmann með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinanda.

Helstu verkefni og ábyrgð

• Skipulagning og framkvæmd sérkennslu.
• Stuðningur við nemendur með fjölbreyttar náms- og félagslegar þarfir.
• Gerð einstaklingsnámskráa og mat á framförum.
• Samvinna við foreldra, fagfólk og stjórnendur.
• Þátttaka í þróunarstarfi og umbótum innan starfsstöðvar.

Menntunar- og hæfniskröfur

• Lokið námi í sérkennslu, þroskaþjálfafræðum eða sambærilegu námi (eða á lokametrum).
• Reynsla af starfi með börnum eða einstaklingum með fjölbreyttar þarfir er kostur.
• Frábær samskiptafærni, jákvæðni og faglegt viðhorf.
• Sjálfstæði í vinnubrögðum og geta til að vinna í teymi.
• Kostur er að hafa réttindi til að leggja fyrir Logos.
• Góð íslenskukunnátta. 

Auglýsing birt15. maí 2026
Umsóknarfrestur31. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Stjórnsýsluhúsið Borg, 805 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar