Kerhólsskóli
Kerhólsskóli

Aðstoðarmatráður í skólamötuneyti 100% starf

Kerhólsskóli óskar eftir aðstoðarmatráði fyrir næsta skólaár 2026-2027.

Kerhólsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli með tæplega 100 nemendur. Aðstoðarmaður matráðs vinnur með matráði. Hann starfar við matargerð, ýmis þrif í eldhúsi og í matsal auk annarra verkefna í tengslum við skólamötuneyti sem yfirmaður/matráður felur honum.

Helstu verkefni og ábyrgð

• Starfar með matráði. 
• Aðstoðar við morgunhressingu og hádegisverð. 
• Aðstoðar við matseld og bakstur þegar þarf.
• Sér um frágang, uppvask og þrif.
• Annast daglega ræstingu eldhúss.

Menntunar- og hæfniskröfur

• Áhugi á fæði og næringu leik- og grunnskólabarna.
• Matartæknanám er kostur.
• Þekking og reynsla af störfum í eldhúsi eða mötuneyti kostur.
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum, hæfileiki til samvinnu, sveigjanleika og tillitssemi.
• Frumkvæði í starfi, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
• Hreint sakavottorð.

Auglýsing birt15. maí 2026
Umsóknarfrestur31. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Grunnfærni
Staðsetning
Stjórnsýsluhúsið Borg, 805 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar