Suðurnesjabær
Suðurnesjabær

Starfsmaður í umhverfismiðstöð

Umhverfismiðstöð Suðurnesjabæjar auglýsir eftir áhugasömum og dugmiklum starfsmanni til verklegra starfa við fjölbreytt verkefni tengd rekstri og viðhaldi bæjarins.
Starfið er fjölbreytt og krefst ábyrgðar, samvinnu og þjónustulundar. Leitað er eftir einstaklingi sem sýnir frumkvæði í starfi, vinnur af stundvísi og samviskusemi og leggur sig fram um að skapa snyrtilegt, öruggt og aðgengilegt umhverfi fyrir íbúa og gesti sveitarfélagsins. Mikilvægt er að viðkomandi sé jákvæður, sýni sveigjanleika og hafi almennt gott viðhorf til vinnunnar og verkefna sem undir starfið falla.

Vinnutíminn er frá 7:15-16 mánudaga til fimmtudaga og 7:15-12:30 á föstudögum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Snjómokstur og hálkueyðing á götum og gangstéttum
  • Grassláttur á opnum svæðum
  • Viðhald opinna svæða og leiksvæða
  • Viðhald og umhirða á gatnakerfi
  • Sorphirða
  • Þjónusta við stofnanir bæjarins
  • Viðhald og hreinsun fráveitu.
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Vinnuvélaréttindi skilyrði
  • Aukin ökuréttindi kostur
  • Reynsla af sambærilegum störfum kostur
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Ríka þjónustulund, drifkraft og frumkvæði til að leysa verkefni sem falla undir starfið
  • Almenn tölvukunnátta
  • Snyrtimennska
  • Góð íslensku kunnátta

Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri og hafa hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til og með 19. maí 2026.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsókn skal fylgja greinargóð starfsferilskrá.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Eyjólfur Þór Magnússon, forstöðumaður umhverfismiðstöðvar á netfanginu [email protected]

Auglýsing birt15. maí 2026
Umsóknarfrestur19. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Sunnubraut 4, 250 Garður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar