
Íþróttafélagið Grótta
Grótta er staðsett á Seltjarnarnesi og innan vébanda þess eru þrjár deildir; fimleikadeild, handknattleiksdeild og knattspyrnudeild. Íþróttamannvirki Gróttu samanstanda af tveimur íþróttasölum, gervigrasvelli, fimleikasal auk búnings- og fundarherbergja, skrifstofuaðstöðu og veislusals.
Meginmarkmið Íþróttafélagsins Gróttu er að þjónusta alla félagsmenn á sem bestan hátt. Áhersla er lögð á árangursríkt samstarf við þá fjölmörgu sem nýta sér þjónustu Gróttu dag hvern.

Íþróttafélagið Grótta auglýsir eftir fjármálastjóra.
Íþróttafélagið Grótta leitar að fjármálastjóra í hlutastarf en möguleiki er á að verði fullt starf.
Grótta er framsækið og metnaðarfullt íþróttafélag sem gaman er að vinna fyrir.
Mikilvægt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.
Fjármálastjóri heyrir undir framkvæmdastjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á rekstri, fjármálastjórn, áætlanagerð og skilvirkri miðlun rekstrar- og fjárhagsupplýsinga.
- Launvinnsla
- Greiðsla reikninga og ýmis reikningagerð
- Yfirumsjón með uppgjörum, innheimtu og ársreikningum.
- Þróun og innleiðing fjárhagskerfa og mælaborða.
- Umsjón með samningagerð, gæða- og öryggismálum.
- Gerð styrkumsókna
- Þátttaka í stefnumótun og þróun rekstrarumhverfis Gróttu
- Umsjón með tölvukerfum og upplýsingatækni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framhaldsmenntun á sviði viðskipta eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi er æskileg
- Reynsla af fjármálastjórn og rekstri
- Reynsla af áætlanagerð, uppgjörum, greiningarvinnu og framsetningu tölulegra gagna.
- Þekking á bókhaldi
- Góð þekking á tölvukerfum, þar á meðal Excel
- Þekking á Microsoft Dynamics 365 Business Central er kostur
- Leiðtogahæfni og góð færni í mannlegum samskiptum.
- Metnaður, frumkvæði, skipulagshæfni og geta til að vinna undir álagi.
- Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti.
Auglýsing birt11. mars 2026
Umsóknarfrestur20. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurströnd 2-8, 170 Seltjarnarnes
Starfstegund
Hæfni
AfstemmingÁrsreikningarFjárhagsáætlanagerðGjaldkeriHeiðarleikiJákvæðniLaunavinnslaMannleg samskiptiMicrosoft Dynamics 365 Business CentralMicrosoft ExcelMicrosoft OutlookPower BIReikningagerðSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðUppgjör
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Gjaldkeri
Eignaumsjón hf

Skrifstofustjóri - Heilsugæslan Árbæ
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sumarstarf í lífeyrisþjónustu í Fjallabyggð
Arion banki

Sala og skipulagning ferða (maí - sept)
Iceland Outfitters

Bókhald
Debet endurskoðun og ráðgjöf

Bókari/uppgjörsaðili
HSE Bókhald & Uppgjör ehf.

Þjónustufulltrúi á skrifstofu félagslegs húsnæðis
Velferðarsvið Kópavogsbæjar

Sumarstarf - Akstursstýring
Torcargo

Sumarstarf á Þjónustusviði - Farmskrárfulltrúi
Torcargo

Söluráðgjafi - fyrirtækjalausnir Creditinfo
Creditinfo

Starfsmaður á lager á skurðstofum við Hringbraut
Landspítali

Verkefnastjóri launa- og kjaramála
Háskólinn á Akureyri