
GER verslanir
GER verslanir er rekstrarfélag Betra baks, Hästens, Dorma og Húsgagnahallarinnar sem bjóða upp á breitt úrval húsbúnaðar og smávara fyrir heimili og fyrirtæki.
Innkaupafulltrúi
Ger verslanir er fjölskyldurekið fyrirtæki sem þjónustar verslanir Betra baks, Hästens, Dorma og Húsgagnahallarinnar.
Við leitum að reyndum og þjónustuliprum einstakling til starfa í innkaup á vörustýringarsviði félagsins til húsa að Bíldshöfða 20.
Við erum að leita að þér ef þú:
- ert með menntun og/eða haldgóða reynslu af sambærilegum störfum
- ert sterk/ur í mannlegum samskiptum og jákvæð/ur
- ert skipulögð/lagður og vinnur vel í hóp
- er talnaglöggur
Um er að ræða líflegan vinnustað þar sem nóg er að gera fyrir duglegan starfsmann. Skilyrði er að umsækjandi hafi náð 25 ára aldri og hafi góða reynslu af verslun og innkaupaferlum.
Um er að ræða fullt starf alla virka daga.
Umsóknarfrestur er til og með 30. júní 2026.
Starfsferilskrá og kynningabréf eru æskileg fylgigögn.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með skráningu innkaupapantana í birgðakerfi.
- Umsjón með sérpöntunum og innkaupum í sérpantanir.
- Innkaup í samræmi við innkaupaáætlun vörustjóra.
- Skráning og utan umhald á sendingum á leiðinni.
- Skrá og senda upplýsingar um vörumóttöku til verslana.
- Samskipti við verslanir og lager.
- Samskipti við innlenda og erlenda birgja.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsreynsla eða menntun á sviði vörustjórnunar er skilyrði.
- Reynsla af innkaupakerfum kostur, t.d Business Central og AGR.
- Greinandi hugsun og talnagleggni.
- Skipulagshæfileikar, nákvæmni, sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
- Geta til að vinna að umbótum og bera ábyrgð.
- Frumkvæði, jákvæðni og hæfni í samskiptum.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Auglýsing birt22. júní 2026
Umsóknarfrestur30. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Bíldshöfði 20, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
BirgðahaldFrumkvæðiGagnagreiningJákvæðniMicrosoft Dynamics 365 Business CentralMicrosoft ExcelMicrosoft OutlookSamskipti með tölvupóstiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkýrslurVandvirkniÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (8)

Alma íbúðafélag, þjónustufulltrúi á viðhaldssviði
Alma íbúðafélag

Starfsmaður í þjónustuver á Akranesi
Ritari

Common Service Assistant
Sendiráð Kanada

Verkefnastjóri þjónustu og rekstrar
Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili

Sérfræðingur í birgðastýringu og bakvinnslu
Öryggismiðstöðin

Þjónustufulltrúi í þjónustu- og þróunardeild bæjarskrifstofu
Akraneskaupstaður

Sérfræðingur í vörukaupaskráningu
Samkaup

Administrative employee
Spes Seafood ehf.