

ICEWEAR Garn óskar eftir starfsfólki í Fullt starf/hlutastarf
ICEWEAR Garn óskar eftir að ráða metnaðarfullan og skapandi einstakling í sölu, heildsölu og verslunarstarf. Viðkomandi þarf að hafa reynslu og áhuga á prjónaskap. Mikilvægt er að viðkomandi búi yfir ríkri þjónustulund og vilja til að veita framúrskarandi góða þjónustu.
Um ICEWEAR
Icewear hefur hlotið jafnlaunvottun og vinnur samkvæmt jafnréttisstefnu fyrirtækisins sem og mannauðsstefnu. Þá er í gildi samskiptasáttmáli. Gildi Icewear eru samskipti, metnaður og ánægja. Lögð er áhersla á samvinnu, góð samskipti og stuðning milli deilda fyrirtækisins.
Tekið er vel á móti nýju starfsfólki.
Móttaka/frágangur vöru í heildsölu/á garnlager
Uppsetning/áfyllingar í verslun
Þjónusta og samskipti við vefverslun (vörur af garnlager)
Afgreiðsla í verslun/heildsölu
Önnur tilfallandi verkefni í samráði við verslunarstjóra
- Þekking á prjónaskap og geta til að leiðbeina viðskiptavinum um allt er viðkemur vali á garni.
- Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
- Heiðarleiki og stundvísi
Góð afsláttarkjör af Icewear vörum, garni og fatnaði.













