
Hluta- og sumarstarf á þjónustuborði
Við leitum að jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingi í hluta- og sumarstarf á þjónustuborði Parka Lausna ehf. Starfið felst í að veita faglega og vandaða þjónustu við viðskiptavini í gegnum síma og tölvupóst, ásamt því að sinna almennum þjónustutengdum verkefnum.
Starfsmenn á þjónustuborði eru oft fyrsti tengiliður við viðskiptavini og því mikilvægt að umsækjandi brenni fyrir því að veita framúrskarandi þjónustu, hafi góða samskiptahæfni og sýni frumkvæði og yfirvegun í annasömu umhverfi.
-
Svara fyrirspurnum viðskiptavina í gegnum síma og tölvupóst
-
Skrá og fylgja eftir málum í þeim kerfum sem félagið notar við úrlausn mála
-
Veita upplýsingar, aðstoð og lausnir í þjónustu- og tæknimálum
-
Vinna náið með öðrum deildum til að tryggja góða upplifun viðskiptavina
-
Að viðkomandi hafi náð 18 ára aldri
-
Framúrskarandi færni í íslensku og ensku, bæði rituðu og töluðu máli
-
Góð almenn tölvukunnátta
-
Hæfni í notkun hugbúnaðar við þjónustu og svörun
-
Skipulögð, sjálfstæð og áreiðanleg vinnubrögð
-
Jákvætt viðmót og lipurð í mannlegum samskiptum
-
Sveigjanlegan vinnutíma
-
Hluti starfs getur farið fram í fjarvinnu
-
Áhugavert og krefjandi vinnuumhverfi
Enska
Íslenska










