Listaháskóli Íslands
Listaháskóli Íslands
Listaháskóli Íslands

Háskólakennari í arkitektúr við LHÍ

Laust er til umsóknar starf háskólakennara í arkitektúr við arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands. Starfið felur í sér kennslu, umsjón og rannsóknir, auk teymis- og samvinnu í samheldnum kennarahópi deildarinnar.

Starfshlutfall er 50% eða hærra. Ráðið er í starfið frá 4. ágúst 2026.

Listaháskóli Íslands er leiðandi í sköpun og miðlun þekkingar í listum, eflir listræna fagmennsku og er í fararbroddi við þróun almennrar menntastefnu í listum. Listaháskólinn er hreyfiafl í síbreytilegum heimi og gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu sem eini háskólinn á fræðasviði lista á Íslandi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið er unnið í samræmi við reglur Listaháskólans um akademísk störf sem eru í gildi hverju sinni.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistaragráða í arkitektúr
  • Starfsreynsla á sviði arkitektúrs
  • Kennslureynsla á háskólastigi
  • Tenging við fagvettvang
  • Reynsla af rannsóknum á sviði arkitektúrs er kostur
  • Samskiptahæfni, áreiðanleiki og skipulagfærni
  • Afbragðs hæfni til að miðla efni í töluðu og rituðu máli
  • Góð íslenskukunnátta er kostur

Við ráðningu verður meðal annars litið til þess hvaða hæfileika ætla megi að umsækjandi hafi til samstarfs við aðra og hvernig eiginleikar hans geti nýst til starfa innan skólans. Doktorsgráða er kostur. Frammistaða í viðtölum mun hafa mikið vægi við ákvörðun ráðningar. Að loknu viðtalsferli verður hæfi valinna umsækjenda metið samkvæmt reglum Listaháskóla Íslands um veitingu akademískra starfa, sjá nánar á lhi.is/log-og-reglur – umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglurnar við gerð umsóknar. 

Auglýsing birt24. febrúar 2026
Umsóknarfrestur18. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Stakkahlíð 1, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FræðigreinarPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.Rannsóknir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar