
Listaháskóli Íslands
Listaháskóli Íslands er leiðandi í sköpun og miðlun þekkingar í listum, eflir fagmennsku og er í fararbroddi fyrir þróun almennrar menntastefnu í listum.
Listaháskóli Íslands er sjálfseignarstofnun með viðurkenningu á fræðisviðinu listir. Skólinn starfar í sjö deildum, myndlistardeild, hönnunardeild, arkitektúrdeild, tónlistardeild, sviðslistadeild, kvikmyndalistadeild og listkennsludeild. Starfsstöðvar skólans eru við Stakkahlíð, Laugarnesveg, Skipholt og Þórunnartún í Reykjavík.

Deildarfulltrúi við LHÍ
Listaháskóli Íslands leitar að áreiðanlegri manneskju með góða samskiptahæfni og þjónustulund í starf deildarfulltrúa við tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Um fullt starf er að ræða.
Listaháskóli Íslands er leiðandi í sköpun og miðlun þekkingar í listum, eflir listræna fagmennsku og er í fararbroddi við þróun almennrar menntastefnu í listum. Listaháskólinn er hreyfiafl í síbreytilegum heimi og gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu sem eini háskólinn á fræðasviði lista á Íslandi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skráning námskeiða og uppsetning kennsluskrár í Uglu
- Umsjón með nemendaskráningu
- Umsjón með umsóknum og skipulag á inntöku nýnema
- Umsjón með útskriftarferli nemenda
- Þjónusta, upplýsingamiðlun og samskipti við nemendur
- Þátttaka í ýmsum verkefnum og viðburðum á vegum deildar og skóla
Deildarfulltrúar allra deilda LHÍ starfa innan námsþjónustu og mynda sameiginlegt teymi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
- Áreiðanleiki og góð hæfni í mannlegum samskiptum og samvinnu
- Góð almenn tölvukunnátta
- Þekking á Uglu og Canvas er kostur
- Þjónustulund, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð yfirsýn, skipulagsgeta og lausnamiðað viðhorf
Auglýsing birt9. febrúar 2026
Umsóknarfrestur24. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Skipholt 31, 105 Reykjavík
Stakkahlíð 1, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiHeiðarleikiJákvæðniMannleg samskiptiNákvæmniSamskipti með tölvupóstiSamviskusemiSkipulagTeymisvinnaÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Innanhúshönnuður og starfsmaður á skrifstofu
Next Level Smíði ehf.

Spennandi sumarstörf um allt land
Eimskip

Sölu- og þjónustufulltrúi á ferðaskrifstofu
Aventuraholidays

Bókari/uppgjörsaðili
HSE Bókhald & Uppgjör ehf.

Þjónustufulltrúi í þjónustuver Starfsmannafélags Kópavogs
Starfsmannafélag Kópavogs

FJÖLBREYTT SKRIFSTOFUSTARF
Fjárfestinga- og fasteignafyrirtæki í 101 Reykjavík

Umsjón áætlunarrúta
Trex Travel Experiences

Sumarstarf á Fyrirtækjasviði BAUHAUS!
BAUHAUS slhf.

Innheimtufulltrúi á fjármálasviði
Travel Connect

Bókari í hagdeild
Samskip

Parlogis leitar að þjónustufulltrúa
Parlogis

Lögfræðingur
Útlendingastofnun