Matfugl
Matfugl

Gæðastjóri - Matvælaframleiðsla (Kjúklingaafurðir)

Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum gæðastjóra til að leiða gæðamál hjá öflugu matvælafyrirtæki sem framleiðir bæði hráar og fulleldaðar kjúklingavörur.

Starfið felur í sér ábyrgð á þróun, innleiðingu og eftirfylgni með gæðakerfum og tryggingu þess að framleiðsla sé ávallt í samræmi við strangar kröfur um matvælaöryggi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón og þróun HACCP gæðakerfis fyrirtækisins.
  • Viðhald og áframhaldandi uppbygging á BRC vottun.
  • Dagleg eftirfylgni með gæðamálum, innri úttektir og gerð verklagsreglna.
  • Þjálfun starfsmanna í gæðakerfum, matvælaöryggi og hreinlætismálum.
  • Samskipti við eftirlitsaðila, viðskiptavini og birgja.
  • Lausn vandamála og stöðug umbótavinna í framleiðsluferlum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í matvælafræði, dýralækningum eða sambærilegu fagi.
  • Reynsla af gæðastjórnun í matvælaframleiðslu er kostur.
  • Þekking á HACCP og alþjóðlegum gæðastöðlum, sérstaklega BRC.
  • Faglegur metnaður, nákvæmni og góð hæfni í samskiptum og leiðtogastarfi.
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt, greina flókin mál og taka upplýstar ákvarðanir.
Auglýsing birt3. mars 2026
Umsóknarfrestur16. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Völuteigur 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁhættugreiningPathCreated with Sketch.Hönnun ferlaPathCreated with Sketch.Innleiðing ferlaPathCreated with Sketch.Umsýsla gæðakerfa
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar