Frístundaþjónusta í Árborg
Frístundaþjónusta í Árborg
Frístundaþjónusta í Árborg

Frístundaheimili Árborgar óska eftir frístundaleiðbeinendum og stuðningsstarfsmönnum

Ef þú hefur áhuga á að vinna með börnum er þetta skemmtilegasta starf sem hægt er að hugsa sér. Starfið felur í sér mikla fjölbreytni, sköpun, klúbba/smiðjustörf, útiveru og mikla gleði.

Hjá frístundaheimilum Árborgar eru starfrækt fjögur frístundaheimili fyrir börn á aldrinum 6-10 ára.

Frístundaheimilin eru hluti af frístundaþjónustu Árborgar og starfa eftir einkunnarorðunum Fjölbreytileiki - Traust - Samvinna – Gleði.

Um er að ræða starf í sumarstarfi frístundaheimila Árborgar í 100% starfshlutfall á tímabilinu 15. júní - 10. júlí og 10. ágúst – 21. ágúst. Í kjölfar þess tekur við vetrarstarf frístundaheimila sem hefst 24. ágúst í 40-50% starfshlutfalli.

Vinnutími á frístundaheimilunum er klukkan 12:45-16:15 í vetrafrístund og klukkan 08:00-16:15 í sumarfrístund.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoð við skipulagningu á faglegu frístundastarfi 
  • Leiðbeina börnum í leik og starfi 
  • Styðja við börn með sérþarfir 
  • Samskipti og samvinna við börn, starfsfólk og foreldra 
Menntunar- og hæfniskröfur

·        Áhugi og ánægja af starfi með börnum

·        Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd 

·        Færni í mannlegum samskiptum og samstarfi 

·        Frumkvæði og sköpunargleði 

·        Góð íslenskukunnátta æskileg 

·        Menntun sem nýtist í starfi æskileg 

Auglýsing birt24. apríl 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.ÍmyndarsköpunPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskipti
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar