

Umsjón skólasels við Nesskóla
Nesskóli auglýsir eftir umsjónaraðila við skólasel Nesskóla.
Vinasel er frístund fyrir nemendur á yngsta stigi skólans, um er að ræða 50% starf. Ráðið er í starfið til eins árs frá og með 1.ágúst 2026.
Í skólanum eru um 180 börn í 1. - 10. bekk. Leitað er að einstakling með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við kennara, foreldra og stjórnendur skólans.
• Starfsmaður sér um skipulag daglegs starfs Vinasels
• Sér um gerð reikninga
• Sér um innkaup á mat fyrir miðdegishressingu
• Kappkostar að eiga gott samstarf og samskipti við þjónustunotendur og fjölskyldur þeirra
• Menntun sem nýtist í starfi er æskileg.
• Reynsla af starfi með börnum er æskileg
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
• Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
• Góðir skipulagshæfileikar.
• Góð tölvufærni
• Ábyrgð og stundvísi.
Íslenska










