

Skólaritari við Nesskóla
Nesskóli auglýsir eftir skólaritara.
Skólaritari veitir skrifstofu skólans forstöðu. Skrifstofan þjónar öllum starfsmönnum og nemendum skólans og er tengill milli skóla og heimilis. Um er að ræða 60% fjölbreytt starf.
Nesskóli er grunnskóli með rúmlega 180 nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn stendur í hjarta bæjarins. Leikskóli, íþróttahús og Verkmennaskóli Austurlands eru í næsta nágrenni og stutt er í sundlaugina. Nesskóli er Byrjendalæsisskóli og Erasmus-skóli. Uppeldisstefnan Uppeldi til ábyrgðar er við lýði í skólanum og kennt er í anda Leiðsagnarnáms. Í skólanum er leitast við að efla hvern einstakling í námi og starfi með fjölbreyttum kennsluaðferðum og áhersla er lögð á list- og verkgreinakennslu. Nánari upplýsingar um Nesskóla má finna á heimasíðu skólans, www.nesskoli.is
• Dagleg afgreiðsla og símavarsla.
• Móttaka fjarvistartilkynninga og að hringja heim í samráði við kennara.
• Annast innritun og nemendaskrá í Mentor.
• Annast alla forfalla- og atvikaskráningu í Mentor og sjá um útprentun.
• Eftirlit með tækjum og búnaði á skrifstofu, sjá um pantanir á ritföngum og kalla til viðgerðamenn ef þörf krefur.
• Annast skjalavörslu.
• Annast ýmis ritarastörf fyrir stjórnendur, sendingu og móttöku pósts og dreifingu hans.
• Góð færni í tölvunotkun.
• Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
• Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum.
• Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
• Góðir skipulagshæfileikar.
• Ábyrgð og stundvísi.
Íslenska