
Dineout ehf.
Dineout ehf. er leiðandi hugbúnaðarhús með áherslur á lausnir fyrir veitingastaði, hótel og annan rekstur. Fyrirtækið var stofnað árið 2017 og hefur verið í miklum vexti síðan. Það samanstendur af þverfaglegu teymi forritara, verkfræðinga og sérfræðinga með mikla reynslu og þekkingu af daglegum rekstri veitingastaða.

Forstöðumaður sölu og þjónustu
Dineout ehf. leitar að drífandi og lausnamiðuðum leiðtoga til að stýra sölu- og þjónustumálum fyrirtækisins. Þetta er lykilhlutverk í ört vaxandi hugbúnaðarfyrirtæki og verkefna felast meðal annars í að stýra framsýnu söluteymi, styrkja tengsl við núverandi viðskiptavini og finna tækifæri til vaxtar á markaði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stýra og þróa sölu- og þjónustuteymi Dineout með skýra framtíðarsýn og hvetjandi forystu
- Móta og innleiða söluáætlanir og þjónustustefnu sem styðja við markmið fyrirtækisins
- Byggja upp og viðhalda sterkum tengslum við viðskiptavini
- Safna og greina gögn um sölu, þjónustu og ánægju viðskiptavina til að styðja við ákvarðanatöku
- Leiða innleiðingarferli nýrra viðskiptavina og fylgja eftir með virku eftirliti
- Þróa og halda utan um þjálfunaráætlanir fyrir sölu- og þjónustuteymi
- Vinna þvert á svið með þróunarteymi, markaðs- og rekstrardeildum
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í viðskiptafræði eða sambærilegu sviði er skilyrði
- Reynsla af leiðtogastarfi innan sölu- og/eða þjónustumiðaðs umhverfis
- Stjórnunarreynsla í hugbúnaðargeiranum er æskileg
- Reynslu af verkefnastjórnun er kostur
- Leiðtogahæfni og geta til að byggja upp liðsheild
- Góð tækni-, hugbúnaðar- og tölvukunnátta
- Sterk samskiptahæfni og þjónustulund
- Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
- Rík þjónustulund og lipurð í samskiptum
Auglýsing birt19. desember 2025
Umsóknarfrestur9. janúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiLeiðtogahæfniMannleg samskiptiMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðSölumennskaSveigjanleikiViðskiptasamböndÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Forstöðumaður Reikningshalds á fjármálasvið Festi
Festi

Fjármálastjóri
Linde Gas

Financial controller - Sérfræðingur í fjármálum
FSRE

Sérfræðingur á fjármálasviði
Arctic Adventures

Chief Financial Officer
Kaldvík

Sviðsstjóri og Verkefnastjóri hjá Faxaflóahöfnum sf.
Faxaflóahafnir sf.

Þjónustusérfræðingur
Vélafl ehf

Launafulltrúi
Vinnvinn

Forstöðulæknir hjarta-, augn- og krabbameinsþjónustu
Landspítali

Verkstjóri
Garðlist ehf

Sérfræðingur í Fjárhagsdeild
Landsbankinn

Framkvæmdastjóri
Fimleikasamband Íslands