Dineout ehf.
Dineout ehf.
Dineout ehf.

UI/UX hönnuður

Dineout leitar að reynslumiklum og metnaðarfullum UI/UX hönnuði til að vinna þvert á þrjú spennandi vörumerki: Dineout, Sinna og Icelandic Coupons. Starfið er fjölbreytt og krefjandi, þar sem unnið er með ólíkar stafrænar vörur, bæði á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða hönnun notendaviðmóta fyrir vef- og smáforrit
  • Móta og þróa hönnunarkerfi (design system) fyrir öll þrjú vörumerkin, með skýra sýn á samræmi og sérstöðu hvers vörumerkis
  • Vinna náið með þróunarteymum, vörustjórum og markaðsdeild
  • Tryggja samrýnda, skýra og notendavæna upplifun í öllum stafrænum lausnum
  • Önnur tilfallandi verkefni, m.a. gerð markaðsefnis
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla og færni í hugbúnaðarhönnun, með áherslu á UX-flæði og UI-hönnun
  • Reynsla af grafískri hönnun og gerð markaðsefnis er kostur
  • Skapandi hugsun og næmt auga fyrir notendaupplifun og útliti
  • Sjálfstæð vinnubrögð og geta til að leiða verkefni frá hugmynd að lausn
  • Góð samstarfs- og samskiptahæfni
Auglýsing birt18. desember 2025
Umsóknarfrestur8. janúar 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HugbúnaðarprófanirPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Notendaupplifun (UX)PathCreated with Sketch.NotendaviðmótPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Vefforritun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar