

Fagstjóri í búsetuþjónustu Akraneskaupstaðar
Starfið felur í sér aðstoð og stuðning við fólk til að lifa sjálfstæðu lífi á heimili sínu jafnt sem utan þess. Markmiðið er að efla vald fólks yfir aðstæðum sínum og lífi, styrkja sjálfsmynd þess, sjálfstraust, félagslega stöðu, sjálfsvirðingu og lífsgæði og stuðla að samfélagsþátttöku. Mannréttindi einstaklingsins og réttur hans til einkalífs skal ávallt hafður í heiðri.
Fagstjóri skipuleggur og ber ábyrgð á faglegu starfi hjá þeim þjónustuþegum sem honum eru skipaðir af forstöðumanni. Þjónustan getur verið allt frá því að veita leiðbeiningar eða minniháttar aðstoð við heimilishald upp í að aðstoða einstaklinga við allt er lýtur að þeirra daglega lífi. Starfinu fylgja mikil samskipti við notendur, starfsmenn, aðstandendur og samstarfsaðila innan og utan kerfis. Það krefst lipurðar í mannlegum samskiptum, frumkvæðis og skipulagðra og sjálfstæðra vinnubragða.
Fagstjóri gengur vaktir þar sem 70% eru almennar vaktir og 30% undirbúningsvaktir.
Um er ræða fimm 80-100% stöður fagstjóra við búsetukjarna Akraneskaupstaðar.
- Vinna að og framfylgja einstaklingsmiðaðri áætlun og faglegu skipulagi þjónustunnar í samráði við yfirmann.
- Ber ábyrgð á einstaklingsáætlun þeirra þjónustuþega sem honum hefur verið skipaðir af forstöðumanni.
- Hafa þekkingu á þjónustusamningum allra þjónustuþega til að gera leiðbeint um fagleg vinnubrögð þegar þess þarf.
- Gerð verklaga og sjónræna skipulaga fyrir þjónustuþega.
- Sjá um rekstur heimilis þeirra þjónustuþega sem þeir bera ábyrgð á.
- Fylgjast með að unnið sé eftir verklagi og áætlunum er snúa að þjónustunotendum og leiðbeina sé slíkt ekki gert.
- Veita aðstoð við umsjón fjármála s.s. greiðslu reikninga, bókhald eða gerð skattframtals í samráði við yfirmann og samkvæmt leiðbeiningum hans.
- Veita persónulegan stuðning og aðstoð við athafnir daglegs lífs.
- Efla sjálfstæði og frumkvæði og sýna stuðning og vináttu.
- Aðstoða við að rjúfa félagslega einangrun.
- Veita aðstoð við öll verk sem fylgja heimilishaldi.
- Fylgjast með heilsufari einstaklings og aðstoða hann við að leita úrlausna.
- Skipuleggur og boðar á teymisfundi þeirra þjónustuþega sem þeir bara ábyrgð á í samstarfi við deildarstjóra.
- Velur í samstarfi við deildarstjóra þá starfsmenn sem eru í teymum þjónustuþega.
- Fagstjóri situr reglulega starfsmannafundi starfsstöðvar.
- Fagstjóri situr reglulega fagfundi og samráðsfundi.
- Fagstjóri er hluti af fagteymi starfsstöðvar.
- Samskipti við aðstandendur í samráði við einstakling og/eða yfirmann.
- Krafist er háskólamenntun á félags-, heilbrigðis- eða uppeldissviði (B.S., B.A., B.Ed.· )
- Skilyrði er að starfsmaður hafi ökuréttindi.
- Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg.
- Reynsla af starfi með fólki með geðræna erfiðleika, fötluðum eða fólki með krefjandi hegðun er nauðsynleg.
- Sjálfstæði í störfum og frumkvæði.
- Góð samskipta- og samvinnufærni.
- Vera lipur, jákvæður, kurteis.
- Reynsla af teymisvinnu er kostur.
- Þekking og reynsla af velferðartækni er kostur
- Vera vandvirkur og samviskusamur.
- Eiga auðvelt með laga sig að breyttum aðstæðum og tileinka sér nýjungar.
- Vera sveigjanlegur vegna mismunandi þarfa þeirra einstaklinga sem verið er að þjónusta.
- Bera virðingu fyrir þeim einstaklingi sem verið er að þjónusta, sérkennum hans, réttindum og skoðunum.
- Hafa áhuga á að leggja sitt af mörkum til að bæta þjónustuna og auka lífsgæði þeirra einstaklinga sem verið er að styðja.
- Sýna trúnað í samskiptum við þjónustuþega, samstarfsfólk og aðra er tengjast starfinu.
Íslenska










