

Deildarstjóri í búsetuþjónustu Akraneskaupstaðar
Deildarstjóri í búsetuþjónustu gegnir lykilhlutverki í daglegri stjórnun og faglegri leiðsögn á starfsstöð. Deildarstjóri er staðsettur í búsetukjarna og hefur heildaryfirsýn yfir skipulag þjónustu og samhæfingu verkefna í nánu samstarfi við forstöðumann, fagstjóra, starfsfólk, þjónustunotendur og aðstandendur. Starfið miðar að því að tryggja faglega, örugga, samfellda og einstaklingsmiðaða þjónustu sem styður þjónustunotendur til sjálfstæðs lífs, virkrar þátttöku í samfélaginu og aukinna lífsgæða.
Í starfi deildarstjóra felst að leiða daglegt starf í samræmi við stefnu Akraneskaupstaðar og lögbundið hlutverk þjónustunnar. Unnið út frá hugmyndafræði valdeflingar og þjónandi leiðsagnar (Gentle Teaching), með hagsmuni, mannréttindi, sjálfræði og reisn þjónustunotenda að leiðarljósi.
Deildarstjóri situr í teymi með öðrum deildarstjórum búsetuþjónustu og innleiðir teymisvinnu í kringum þjónustu við íbúa.
Um er ræða þrjár 100% stöður á búsetukjörnum Akraneskaupstaðar.
- Leiðir daglegt starf á kjarna í samstarfi við fagstjóra.
- Aðlögun og fræðsla nýrra starfsmanna.
- Veitir faglega ráðgjöf, fræðslu og stuðning við þjónustunotendur og aðstandendur.
- Vinnur einstaklingsbundnar þjónustuáætlanir í samvinnu við fagstjóra.
- Hefur umsjón með varðveislu og/eða skömmtun lyfja til notenda þjónustu samkvæmt fyrirmælum læknis.
- Vinnur vaktaplön og samþykkir vinnustund í samvinnu við forstöðumann.
- Bregst við veikindum og annarri fjarveru starfsmanna, með því að endurskipuleggja dagsplan þar sem því verður við komið eða kallar út aukavaktir.
-
Tekur þátt í undirbúningi starfsmanna- og teymisfunda og situr þá.
-
Tekur þátt í fræðslu, stefnumótun, gæða- og þróunarstarfi, samkvæmt nánari ákvörðun forstöðumans.
- Tryggir samræmi í framkvæmd og upplýsingaflæði.
- Starfsleyfi sem þroskaþjálfi, iðjuþjálfi, eða önnur sambærileg háskóla menntunun (BA, BS, BEd) sem nýtist í starfi er skilyrði.
- Góð almenn tölvukunnátta og ökuréttindi eru nauðsynleg.
- Reynsla að stjórnun, rekstri og verkefnastýringu nauðsynleg.
- Reynsla af starfi með fötluðu og/eða öldruðu fólki er nauðsynleg.
- Framúrskarandi færni í samskiptum og skipulagningu.
- Vandvirkni og samviskusemi.
- Sjálfstæði í störfum og frumkvæði.
- Eiga auðvelt með laga sig að breyttum aðstæðum og tileinka sér nýjungar
- Sveigjanleiki vegna mismunandi þarfa þeirra einstaklinga sem verið er að þjónusta.
- Virðing fyrir þeim einstaklingi sem veita þarf stuðning, sérkennum hans, réttindum og skoðunum.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Íslenska










