

Deloitte á Akureyri leitar að viðskiptafræðingi
Deloitte á Akureyri leitar að öflugum einstaklingi sem langar að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni. Við leitum að einstaklingi sem hugsar í lausnum, getur unnið sjálfstætt, er drífandi og vill hafa áhrif. Viðkomandi mun starfa í samheldnu teymi undir handleiðslu löggiltra endurskoðenda og öðlast þannig dýrmæta reynslu meðal annars á sviði endurskoðunar og reikningsskila.
Vinna við endurskoðun, gerð ársreikninga, gerð skattframtala og almenna fjármálaráðgjöf.
-
Þú ert að ljúka eða hefur lokið B.Sc. menntun sem tengist viðskiptafræði, hagfræði eða fjármálum
-
Þú hefur metnað og nýtur þess að læra
-
Þú hefur gaman af því að takast á við ný og krefjandi verkefni
-
Þú býrð yfir greiningarhæfni og góðri þekkingu á Excel
-
M.Acc gráða er kostur
- Regluleg frammistöðu samtöl
- Samstarfsfélaga ‘buddy’ sem kemur þér inn í starfið
- Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
- Styrki til nýbakaðra foreldra
- Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum
- Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið
Íslenska










