

BYKO Akureyri - Starfsmaður í timburskýli
Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi til liðs við okkur í timburskýli BYKO Akureyri
Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Vinnutími: Alla virka daga frá kl. 08-16, þriðja hver vika frá kl. 10-18 og einn til tveir laugardagar í mánuði.
Við leitum að starfsmanni með:
- Ríka þjónustulund
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Lyftarapróf, kostur
- Stundvísi
- Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Umsjón útisvæðis við verslun BYKO Akureyri
- Þjónusta, ráðgjöf og afgreiðsla til viðskiptavina
- Önnur tilfallandi verkefni
Hvetjum öll áhugasöm til þess að sækja um, óháð kyni.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Umsóknarfrestur er til 13. júlí 2025 en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.
Allar nánari upplýsingar veitir Egill Snær Þorsteinsson ([email protected]), verslunarstjóri.



















