Byko
Byko
Byko

Starfsmaður í timburafgreiðslu - BYKO Suðurnesjum

Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi í timburafgreiðslu okkar á Suðurnesjum.

Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.

Vinnutími: Alla virka daga frá kl. 08:00-16:00 og 10:00-18:00. Einnig þriðja hver helgi.

Á næstu mánuðum munum við opna glæsilega nýja verslun að Fitjum þar sem við munum geta veitt viðskiptavinum okkar enn betri upplifun af því að versla við BYKO ásamt því að bjóða starfsfólki okkar upp á úrvals vinnuaðstöðu.

Við leitum að starfsmanni með:

  • Ríka þjónustulund
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Lyftarapróf, kostur
  • Áhuga á verslun og þjónustu
  • Bílpróf, skilyrði

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Almenn afgreiðslu og lagerstörf
  • Móttaka og frágangur á vörum
  • Almenn þjónusta við viðskiptavini
  • Önnur tilfallandi verkefni

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.

BYKO hefur sett sér þá framtíðarýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.

Umsóknarfrestur er til og með 5. júlí en unnið er úr umsóknum jafnóðum.

Allar nánari upplýsingar veitir Gunnur Magnúsdóttir, verslunarstjóri ([email protected]).

Auglýsing birt18. júní 2025
Umsóknarfrestur5. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Víkurbraut 14, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar