

Starfsmaður á þjónustuborði og afgreiðslukassa - BYKO Selfossi
Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi til liðs við okkur í starf á þjónustuborði og afgreiðslukössum í verslun okkar BYKO Selfossi. Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita af þér.
Vinnutími er virka daga, ýmist 08:00 – 16:00 og 10:00 – 18:00, og aðra hverja helgi.
Við leitum að einstaklingi með:
- Reynslu af þjónustustörfum, kostur
- Ríka þjónustulund
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhuga á verslun og þjónustu
- Íslenskukunnáttu
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Afgreiðsla og þjónusta á þjónustuborði, afgreiðslukassa og sjálfsafgreiðslu
- Þjónusta viðskiptavini
- Áfyllingar
- Önnur tilfallandi verkefni
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavinar í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Umsóknarfrestur er til og með 31. júlí en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Valgeir Ólafur Flosason, verslunarstjóri ([email protected])












