Ísbúð Huppu
Ísbúð Huppu
Ísbúð Huppu

Verslunarstjórar á Höfuðborgarsvæðinu

Ísbúð Huppu óskar eftir að ráða frábæra verslunarstjóra á nokkrar staðsetningar á Höfuðborgarsvæðinu. Starfshlutfall er 50-100% eða eftir samkomulagi.

Farið verður yfir umsóknir um leið og þær berast. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá, kynningarbréf æskilegt.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Afgreiðsla og umsjón með daglegum rekstri verslunarinnar
  • Þjálfun og stjórn starfsmanna
  • Viðhald á gæðum og þjónustustigi
  • Vöruinnkaup og birgðarstýring
  • Vaktaskipulag og skýrslugerð
Menntunar- og hæfniskröfur
  • 25 ára eða eldri
  • Reynsla af verslunar- eða þjónustustörfum (stjórnunarreynsla kostur)
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og leiðtogahæfileikar
  • Góð samskiptafærni og þjónustulund
  • Sveigjanleiki og lausnamiðuð hugsun
Auglýsing birt1. júlí 2025
Umsóknarfrestur31. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Garðatorg 6, 210 Garðabær
Austurströnd 7, 170 Seltjarnarnes
Spöngin 16
Reykjavíkurvegur 72, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar