Garri
Garri
Garri

Þjónustufulltrúi í vöruhúsi

Við leitum að öflugum og jákvæðum einstaklingi til starfa í afgreiðslu vöruhúss Garra sem nýtur þess að vera í fjölbreyttum verkefnum, býr yfir metnaði til að veita framúrskarandi þjónustu og hefur góða skipulagshæfni.

Hjá okkur færðu tækifæri til að tileinka þér nýja færni og starfa í skemmtilegu og stuðningsríku umhverfi þar sem heiðarleiki, áreiðanleiki og ástríða eru höfð að leiðarljósi.

Vinnutími er frá kl. 07 - 16 og viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Um framtíðarstarf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta og taka vel á móti viðskiptavinum og gestum sem koma í vöruafgreiðslu Garra
  • Afgreiðsla og bókun reikninga
  • Svara tölvupóstum og símtölum- leysa úr þeim málum sem á borða berast
  • Öflugt samstarf við aðrar deildir innanhúss og bílstjóra Garra
  • Vakta pantanir í Dynamics Ax og tryggja afhendingar innan tímamarka
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Rík þjónustulund, jákvæð framkoma og lausnamiðuð hugsun.
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Skipulags- og aðlögunarhæfni
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
  • Góð tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Afsláttur af vörum Garra
  • Íþróttastyrkur eftir sex mánaða starf
  • Gott mötuneyti
  • Frábærir samstarfsfélagar og öflugt starfsmannafélag
Auglýsing birt26. júní 2025
Umsóknarfrestur9. júlí 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hádegismóar 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Dynamics AXPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar