Hæstiréttur Íslands
Hæstiréttur Íslands

Aðstoðarmaður dómara við Hæstarétt

Við Hæstarétt er laust til umsóknar starf löglærðs aðstoðarmanns dómara.

Leitað er að kraftmiklum og hæfileikaríkum lögfræðingi sem hefur öðlast nokkra starfsreynslu og brennur fyrir því að takast á við krefjandi lögfræðileg úrlausnarefni. Starfið krefst færni í að greina lögfræðileg álitaefni, nákvæmni í vinnubrögðum og hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í nánu samstarfi við aðra. Framundan er áframhaldandi áhersla á stafræna vinnslu og tæknilega framþróun og gegna aðstoðarmenn mikilvægu hlutverki í þeirri þróun.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoð við meðferð dómsmála fyrir réttinum.
  • Aðstoð við meðferð beiðna um leyfi til að skjóta málum til réttarins.
  • Birting dóma og reifana og tilkynningar til aðila.
  • Samskipti við lögmenn.
  • Móttaka gesta og kynning á starfsemi réttarins.
  • Þátttaka í hugmyndavinnu og tæknilegri framþróun verklags hjá réttinum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Grunn- og meistaranám í lögfræði.
  • Að lágmarki tveggja ára starfsreynsla á sviði lögfræði.
  • Haldgóð þekking í réttarfari.
  • Mjög góð færni í íslensku, bæði töluðu og rituðu máli.
  • Gott vald á ensku og haldgóð þekking á einu Norðurlandamáli.
  • Sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum, jákvætt viðhorf og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Færni og áhugi á að tileinka sér stafrænar lausnir og nýja tækni.
Auglýsing birt5. nóvember 2025
Umsóknarfrestur17. nóvember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Lindargata 2, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar