
Aðstoðarkona óskast til starfa
Hæhæ :)
Ég er 45 ára kona, lífsglöð og jákvæð sem bundin er við hjólastól og leita því aðstoðarkonu til að hjálpa mér við hið daglega líf.
Dagarnir hjá mér eru fjölbreyttir og lifandi, og ég reyni að njóta lífsins eins og ég get. Skemmtilegast þykir mér að hlæja, hafa gaman, fara á tónleika og ferðast gjarnan til útlanda ásamt aðstoðarfólki mínu.
Það er unnið á 12 tíma vöktum og það er verið að bjóða uppá starf sem væri þá 8-10 eða 12 vaktir á mánuði.
Það sem ég óska eftir er jákvæð, dugleg, áreiðanleg og líkamlega hraust aðstoðarkona sem er 25 ára eða eldri, með bílpróf, hreint sakavottorð og talar íslensku þar sem ég notast við merki til þess að tjá mig.
Viðkomandi þarf að geta byrjað fljótlega í starfinu.
Ég geri ekki þá kröfu að aðstoðarfólk búi yfir reynslu af starfi með fötluðu fólki. Ef þú telur þetta vera rétta starfið fyrir þig þá hlakka ég til að heyra frá þér.(only Icelandic speaking)
Astoð við allar athafnir.
Íslenska










