

Aðstoðarforstöðumanneskja frístundar
Við í Salaskóla leitum að jákvæðum og áhugasömum einstaklingi í starf aðstoðarforstöðumanneskju frístundar. Um er að ræða tímabundna ráðningu vegna afleysingar í eitt skólaár, frá 1. ágúst 2026-31. júlí 2027.
Salaskóli tók til starfa haustið 2001 og er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. árgangi. Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf undir einkunnarorðunum vinátta - virðing - samstarf og hefur uppeldisstefnan Uppeldi til ábyrgðar verið lögð til grundvallar í skólastarfinu.
Í frístund Salaskóla er lögð áhersla á að bjóða upp á fjölbreytt viðfangsefni og hópastarf, jafnt inni og úti, og hafa börnin að einhverju leyti val um viðfangsefni. Áhersla er á að þroska félagsfærni og vináttu í gegnum leik og starf. Aðstoðarforstöðumanneskja ber ábyrgð á stjórnun og starfi frístundar ásamt forstöðukonu í samstarfi við stjórnendur skólans. Á næsta skólaári verða líklega um 140 börn í frístund.
- Staðgengill forstöðukonu.
- Þátttaka í og aðstoð við skipulag hópastarfs og verkefna og við rekstur frístundar.
- Hópastarf með börnum inni og úti.
- Samvinna og samstarf við starfsfólk frístundar, kennara, foreldra og stjórnendur.
- Háskólanám á sviði tómstundafræða, uppeldisfræða eða tengdra greina er kostur.
- Reynsla af stjórnun og skipulögðu starfi með börnum er æskileg.
- Hæfni til að skipuleggja faglegt starf og veita því forystu.
- Stundvísi og áreiðanleiki.
- Samskiptahæfni, frumkvæði og sköpunargleði.
- Færni og vilji til að starfa í teymi með velferð og farsæld barna að leiðarljósi.
- Góð tök á íslensku bæði í máli og riti.
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
Íslenska










