

Forstöðumaður frístundar í Varmárskóla
Varmárskóli Í Mosfellsbæ leitar að forstöðumanni frístund Varmárskóla.
Við erum að leita að starfsmanni sem hefur brennandi áhuga á að gera frístundastarf fyrir börn öruggt, áhugavert og skemmtilegt og þar með eftirsóknarvert.
Frístundasel Varmárskóla er rekið í beinum tengslum við skólann og býður upp á vistun fyrir börn í 1.- 4.bekk eftir að skóla lýkur á daginn, ásamt sumarfrístund í júní og ágúst og vetrarfrístund í jólaleyfi. Að jafnaði eru um 130-150 börn í selinu yfir veturinn en mun færri í sumarfrístund.
Frístundaselið er rekið bæði í sérstöku húsnæði á lóð skólans og inni í skólanum. Samstarf við aðra starfsmenn skólans er mikið og næsti yfirmaður forstöðumanns selsins er skólastjóri.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Forstöðumaður ber ábyrgð á skipulagi daglegs starfs með börnum og starfsmannamálum í frístundaselinu. Hann vinnur með skráningar í Völu kerfinu og sér um reikningagerð í samstarfi við innheimtudeild Mosfellsbæjar og gengur í önnur þau störf sem nauðsynleg eru í tengslum við starfið í selinu.
- Háskólamenntun á uppeldissviði eða sambærileg menntun og/eða góð reynsla af starfi með börnum.
- Reynsla sem nýtist í starfiFrumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
- Góð færni í samvinnu og samskiptum
- Áhugi á starfi með börnum
- Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
- Góð íslenskukunnátta
Íslenska










