

Umsjónarkennari í Varmárskóla
Varmárskóli í Mosfellsbæ óskar eftir að ráða umsjónarkennara fyrir næsta skólaár
Í skólanum eru um 400 nemendur í 1.-6. bekk. Skólinn er Uppbyggingarskóli og verið er að innleiða Leiðsagnarnám. Þá er unnið með Byrjendalæsi í 1.-4.bekk og Læsi fyrir lífið í 5.-6.bekk. Stutt er í fjölbreytta náttúru og lögð er áhersla á útikennslu. Í öllum árgöngum er mikið samstarf um nám og kennslu. Starfsmannahópurinn er öflugur, samvinna og samhjálp eru einkennandi fyrir samskipti innan hópsins og starfsandi hefur verið mjög góður. Okkur vantar umsjónarkennara á yngsta stig sem eru tilbúnir til að takast á við þessi verkefni og verða partur af þessum góða samstarfshópi. Mögulegt starfshlutfall er á bilinu 80-100%.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
- Leyfisbréf til kennslustarfa
- Reynsla sem nýtist í starfi
- Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
- Góð færni í samvinnu og samskiptum
- Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
- Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði
Íslenska










