Hagaskóli
Hagaskóli

Heimilisfræðikennari í Hagaskóli

Laus er til umsóknar staða heimilisfræðikennara við Hagaskóla skólaárið 2026–2027. Um er að ræða 100% stöðu. Hagaskóli er safnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur með tæplega 600 nemendur í 8. – 10. bekk. Í Hagaskóla er lögð áhersla á jákvæðan skólabrag, fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, skapandi verkefni og innleiðingu á Menntastefnu Reykjavíkurborgar. Skólinn hefur tekið þátt í fjölbreyttum þróunarverkefnum á liðnum árum. Umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf fyrir kennslu auk annarra gagna er málið varðar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu nemenda í samráði við stjórnendur, aðra kennara og foreldra.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf kennara.
  • Kennaramenntun með áherslu á heimilisfræði.
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Faglegur metnaður, frumkvæði í starfi og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með unglingum.
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Fríðindi í starfi

Sundkort

Heilsuræktarstyrkur

Samgöngustyrkur

Auglýsing birt9. maí 2026
Umsóknarfrestur24. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Fornhagi 1 Hagaskóli , 107 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar