

Aðstoð vantar á tannlæknastofu.
Menntaður tanntæknir eða ófaglærða aðstoðarkonu tannlæknis vantar á tannlæknastofu í Kópavogi, um er að ræða 60-90% starf.
Viðkomandi þarf að vera á aldrinum 45-60 ára og geta hafið störf um miðjan ágúst 2026.
Ferilskrá og meðmæli frá fyrri starfsveitendum eru æskileg.
Viðkomani þarf að vera jákvæð og glaðleg í fasi og með góða samskiptahæfileika.
Starfið felur það í sér að viðkomandi þarf að hafa góða samskiptahæfni, tölvukunnáttu er æskileg svo að viðkomandi getið unnið í tannlæknaforriti við afgreiðslu og tímabókun sjúklinga, svara símtölum sem hringd eru inn á tannlæknastofuna, aðstoða tannlækni við tannlæknastólinn eftir þörfum, þrífa tannlæknastólinn eftir hvern aðgerðartíma og setja tannlæknastólinn upp og gera hann klárann fyrir næsta sjúkling.
Starfið felur einnig í sér þrif og sótthreinsun á verkfærum og tækjum, ásamt almennum þrifum á aðgerðarstofum á milli sjúklinga.
Íslenska
Enska
Danska
Pólska










