NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Aðstoðarkona óskast í fullt starf, aðalega á næturvaktir

Kona leitar að aðstoðarkonu í fullt starf. Um er að ræða næturvaktir á virkum dögum og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega.


Starfið felst í aðstoð við daglegt líf, meðal annars heimilisstörf, persónulegt hreinlæti og önnur verkefni sem til falla. Einnig felur starfið í sér að vera framlenging af mér í því sem ég kýs að taka mér fyrir hendur frá degi til dags, hvort sem er í daglegu lífi, starfi eða tómstundum.


Mikil áhersla er lögð á virðingu, gott samstarf og jákvæð samskipti. Ég leita að aðstoðarkonu sem er áreiðanleg, skipulögð, ábyrg og getur unnið sjálfstætt.

Hæfniskröfur:
• Reynsla af umönnun, aðstoðarstörfum eða sambærilegum störfum er skilyrði.
• Bílpróf (almenn ökuréttindi) er skilyrði.
• Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
• Umsækjandi þarf að vera reyklaus.
• Umsækjandi þarf að vera heilsuhraust og geta sinnt starfinu af öryggi.
• Aðeins umsækjendur 23 ára og eldri koma til greina.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi NPA miðstöðvarinnar og Eflingar.

Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf en hægt er að lesa nánar um hugmyndafræðina og notendastýrða persónulega aðstoð á vef NPA miðstöðvarinnar www.npa.is

Auglýsing birt8. júní 2026
Umsóknarfrestur23. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar