Mímir - símenntun
Mímir - símenntun
Mímir - símenntun

Skóla- og frístundasmiðja og íslenska 3

|Information in English below]

Hefur þú áhuga á að vinna með börnum og ungmennum en þarft að læra meiri íslensku? Þá er þetta námskeið fyrir þig!

Skóla- og frístundasmiðja og íslenska 3 er sérstakt námskeið fyrir þau sem langar að vinna með börnum og þurfa traustan grunn í íslensku til að geta sinnt starfinu á árangursríkan og faglegan hátt.

Þetta er tækifæri fyrir þig til að læra hagnýta íslensku sem nýtist í starfi sem skólaliði eða á frístundaheimili.

Um námskeiðið:

Námskeiðið samanstendur af fjölbreyttum námsþáttum sem miða að því að styrkja íslenskukunnáttu þína og veita þér nauðsynlega þekkingu og færni í mörgu því sem viðkemur skóla- og frístundastarfi á Íslandi.

Áhersluþættir námskeiðsins:

  • Læra íslensku með starfstengdri áherslu: Þú byggir upp orðaforða sem nýtist sérstaklega í starfi með börnum og ungmennum.
  • Fá innsýn í skóla- og frístundastarf: Þú kynnist starfsháttum og menningu í skóla- og frístundastarfi á Íslandi sem eykur skilning þinn og gerir þig að verðmætari starfsmanni.
  • Taka þátt í skapandi vinnustofum: Í náminu er lögð áhersla á skapandi nálgun í starfi með börnum og ungmennum m.a. í gegnum leiklist og leiki.
  • Fara í vettvangsnám á frístundaheimili: Þú færð fjögurra daga vettvangsnám í grunnskóla eða frístundaheimili þar sem þú tekur virkan þátt í daglegu starfi þar. Þetta er gott tækifæri til að tengja námið við raunverulegar aðstæður.

-----

School and leisure workshop and Icelandic 3

Are you interested in working with children and young people but need to learn more Icelandic? Then this course is for you!

The School and Leisure Activities Workshop and Icelandic 3 is a special course for those who wish to work with children and need a solid foundation in Icelandic to be able to carry out their work effectively and professionally.

This is an opportunity for you to learn practical Icelandic that will be useful in a job as a teaching assistant or in an after-school club.

About the course

The course consists of a variety of modules aimed at strengthening your Icelandic language skills and providing you with the necessary knowledge and skills for many aspects of school and leisure activities in Iceland.

Course Focus

  • Learn Icelandic with a vocational focus: You build a vocabulary that is particularly useful in working with children and young people.
  • Get an insight into school and leisure activities: You will become familiar with the working practices and culture of school and leisure activities in Iceland, which will increase your understanding and make you a more valuable employee.
  • Take part in creative workshops: The programme places an emphasis on a creative approach to working with children and young people, particularly through drama and games.
  • Fieldwork at a youth club: You will undertake a four-day placement in a primary school or a club where you will take an active part in the daily work. This is a good opportunity to connect your studies with real-life situations.

 

Hefst
17. ágúst 2026
Tegund
Staðnám
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar